09. júní 2007 klukkan 15:40
Núna er ég í smá vandræðum...ég get ekki ákveðið mig hvað ég á að gera? Hvort á ég að koma heim í ágúst til að fara á eyjuna góðu á Þjóhátíð með minni elskulegu Dagnýu...eða vera hérna í Frakklandi þangað til í september??? Þetta er bara oooof erfitt að ákveða!
Gyða Björk
06. júní 2007 klukkan 09:49
Jææææææja hvernig væri nú að ég bloggaði smá...ég vissi að ég væri slæm en ekki svona slæm! Ég hef samt smá afsökun....ég gleymdi lykilorðinu mínu til að komast inná síðuna, þannig ég hef alveg semí afsökun fyrir þessu blogleysi! Nóg um það, ég hef að sjálfsögðu alveg helling að skrifa um þar sem seinasta blog var skrifað einhverntíman í APRIL...aaaages ago!
OK byrjum á því að Egill og Atli komi til mín í heimsókn um miðjan april á meðan þeir voru á eurotrippinu sínu...það vera mjög gaman að fá drengina í heimsókn...við fórum allt þetta helsta túrista dæmi...Cannes, Mónakó...og svo lágum við bara á ströndinni líka og höfðum það gott...það var ekki mikið um fyllerí þessa 4 daga sem stákarnir voru hérna, þeir voru meira í afslöppun hjá mér og fengu svo að þvo þvottin sinn hjá mér...sem hefði mátt hafa farið betur...haha endaði með því að svona 70% þvottinum miglaði inní íbúð hjá mér, kannski of mikill raki...haha ég get ekki sagt að lyktin hafi verið góð! En þetta reddaðist í endan og allir fengu hreinan þvott...síðasta kvöldið ákváðum við að fá okkur smá í glas, strákarnir komu með þessa fínu vínflöskur sem þeir keyptu þegar þeir fóru í vínmökkun...við hefðum getað drukkið vínið við huggulegri aðstæður en það endaði með því að við fórum í drykkjuleik með rauðvíni (eitthvað sem ég mæli ekki með) og Atli þurfti að drekka úr bolla þar sem ég átti bara 3 vínglös....þetta leit einhvernvegin svona út:

Wifebeaterinn gerir myndina
Næsta á dagskrá eftir að strákarnir fóru var að flytja í nýja íbúð...ég var mjög spennt yfir því að flytja í nýju íbúðina þar sem hún er miklu betri en þessi sem ég var í...í þessari íbúð er ég með internetið, heimasíma sem ég get hringt úr frítt heim til íslands og ég er með plazma sjónvarp með helling af stöðvum aaaand i have a walking closet...every girls dream...hehe nei ég segi svona...þessi íbúð er frábær...og svo fekk ég með íbúðinni yndislega stelpu sem heitir ADDÝ....
Addý var að kom til Nice til að fara í skóla í mánuð og það vildi svo skemmtilega til að við vorum báðar að leyta að íbúð þannig hún leigði með mér hérna í mánuð á meðan hún var í Nice...og ég verð að segja eins og er að þetta var örugglega skemmtilegasti mánuðurinn í Nice so far...það var svo ótrúlega gaman hjá okkur....við fórum á ströndi´na á hverjum einsata degi...og svo heim í sturtu og svo aftur út...annaðhvort til að fá okkur LOOOONG ISLAND ICE TEA eða bara til að fara út og hitta stelpurnar....

Nýja íbúðin mín


Þetta er mjög kósí íbúð...en nóg um íbúðina...ég fekk fleiri heimsóknir líka...Halla Karí frænka kom og heimsótti mig og Addý núna fyrir nokkrum dögum síðan, það var rosalega gaman að fá hana í heimsókn til okkar, við fórum og gerðum þetta týpíska túrista dæmi aftur...hehe og lágum á ströndinni og djömmuðum...við fórum lílka til Italiu og versluðum smá...Halla var hérna í 8 daga og það var leið alveg ótúlega fljótt, og áður en ég vii af þá var hún Addý mín líka farin heim...mjög leiðinlegt!
Ég og Addý með bláu kokteilana...nammmm

á leiðinni á djammið í Monaco....
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna...það tæki alltof langan tíma að telja upp allt það sem við gerðum hérna á meðan Addý var í Nice...ég skal lofa að vera duglegri að blogga núna...núna man ég passwordið þannig ég hef enga afsökun lengur...hehe
Vonandi hafiði það got heima...ég ætla að skella mér í bikiníið og fara í sólbað...hehe lítið annað hægt að gera þegar maður er ekki að vinna hérna í Frakklandi... 
BISOU
g
Gyða Björk
25. apríl 2007 klukkan 16:37
Jæja þá eru komnar glænýjar myndir inn frá helginni þegar Egill og Atli voru hjá mér....en ég blogga um það seinna....
enjoy :)
g
Gyða Björk
12. apríl 2007 klukkan 13:46
Þá eru páskarnir búnir og ég verð að segja eins og er að þetta voru bestu páskar sem ég hef upplifað í mörg ár...frekar óhefðbundnir en góðir. Mamma og Pabbi komu til mín 30. mars og voru hjá mér í 10 daga. Það var alveg yndislegt að fá þau í heimsókn. Pabbi var búnn að leigja bíl hjá Avis áður en þau komu út þannig við byrjuðum ferðina á því að keyra upp til Provence. Við keyrðum til Cannes og svo til St. Tropez, þar stoppuðum við í svona klukkutíma til að skoða okkur um og fá okkur smá að borða. Ég var búin að gera þvílíkar væntingar og hérlt að St.Tropez væri alveg geggjaður bær en svo var ekkkert í þetta varið. Þetta var bara stór snekkjubátahöfn með flottum snekkjum og búið, þannig að þegar við vorum búin að borða héldum við bara af stað aftur. Næsta stopp var í Aix en Provence, sama sagan aftur.. maður var búin að heyra þvílikar sögur um þetta er sé algjör paradís og þvílík fegurð, en við vorum ekki alveg að skilja þetta þegar við konmum...það var nefla ekkert spés að sjá þarna. Klukkan var orðin 11 og það var komið mirkur þannig eftir langa leit af hótelgistingu fundum við loksins laust herbergi og fórum að sofa. Daginn eftir keyrðum við til borgar sem heitir Gordes. Gordes er víst þriðja fallegasta borg í Frakklandi, en borgin er öll byggð á klettum..húsin hanga öll á bröttum klettum, mjög skemmtilegt að fara þangað. En þar gistum við á mjög sætu sveita hóteli í eina nótt. En eftir þriggja daga keyrslu ákváðum við að fara bara afrur til Nice vegna þess að veðrið var svo leiðinlegt þerna uppí fjöllunum...
Síðasta fimmtudag hitti ég Guðnýu og Hrafntinnu sem var líka í heimsókn yfir páskana...við fórum allar út að borða saman og svo að djamma...þetta var snilldar kvöld, við borðuðum á Waynes og svo enduðum við þar allt kvöldið...við hittum stóran hóp á íslenskum körlum sem voru hérna á ráðstefnu með Kaupþing og þeir voru þarna á Waynes allt kvöldið líka...Waynes er frekar lítill staður og ef það á að vera nóg pláss fyrir fólk til að dansa verður maður að dansa upp á borðum...og manni er skipað til að dansa uppá borðum...þannig við stelpurnar enduðum kvöldið á að dansa sveittar uppá borðum með einhverjum íslenskum Kaupþing körlum og drekka frítt kampavín allt kvöldið...hehe! Þvílikt stuð...
Svo daginn eftir vöknuðum við snemma til að fara til Italiu...við keyrðum þangað og Guðný og Hrafntinna komu með...þar fórum við á svona skemmtilegan markað með allskonar varningi...svo á leiðinni tilbaka frá Italiu stoppuðum við í Mónakó til þess að fá okkur að borða...
Svo gerðum við margt margt fleira eins og skoða Nice betur og fara í sólbað og svona...það var mjög gaman að lifa aðeins eins og túrirsti í 10 daga....
það var samt voðalega erfitt að kveðja gamla settið eftir svona skemmtilegan tíma saman, og þegar ég kom aftur heim af flugvellinum var allt voðalega tómlegt í kotinu...en það styttist óðum í að Egill og Atli koma til mín...hlakka til að fá strákana i heimsókn =) síðan er Halla Kárí frænka mín að koma til mín 21. maí, þannig það er nóg að gera hjá mér og ekki hægt að segja að mér leiðist hérna í Nice...hehe svo er búin að setja inn nýjar myndir, þær eru undir Páskar í Frakklandi...
enjoy
gyða
...
Gyða Björk
21. mars 2007 klukkan 15:17
Ég er núna búin að vera í Frakklandinu góða í næstum því 3 mánuði og ég er búin að sjá svo margt hérna og kynnast svo mikið af bæði skrítnu skemmtilegu og yndilslegu fólki...ég er búin að vinna 4 vaktir á Thor núna...og þetta er alveg mjög erfitt...að vinna frá 5 til 3 um nóttina...en það er svo mikið af skemmtilegu fólki að vinna með mér og maður hittir svo mikið af allskonar skrítnu liði þarna að maður er fljótur að gleyma hvað maður er þreittur....ég var að vinna á St.Patricks day og við mættum snemma í vinnuna til að skreyta allan staðin með grænu...það var þvílík stemming í gamla Nice bænum...glampandi sól og alliir í góðu skapi...fólk bara komið í sumar fílingin...
það er stelpa að vinna með mér sem er frá Svíþjóð, og í gær fór ég að djamma með henni og vinkonum hennar...allar mjög skemmtilegar. Þær búa 5 stelpur saman í geggjaðri íbúð alveg í miðbænum rétt hjá ströndinni. Svo fórum við aðeins yfir á Thor til að fá okkur nokkra drykki og það var alveg pakkað þarna inni...á Þriðjudegi...hérna eru allir dagar laugadagar, það elska ég við þennan stað...skiptir ekki máli hvaða dagur það er, þú getur alltaf farið út að djamma. En ég ætlaði bara aðeins að láta heyra í mér... :) ég er ekki búin að setja inn neinar myndir nýlega en ég er örugglega með svona 10 albúm til að setja inn...hehe það kemur þa kemur....
en ég er að spá í að fara til Antibes til að heimsækja Guðnýu....
heyrumst...G
Gyða Björk
14. mars 2007 klukkan 17:57
Það helsta í fréttum er :
Ég er komin með vinnu hérna í Nice....
er að vinna á bar sem heitir Thor pub!yndilsegt sumar framundan...sólríkir dagar og endalaus gleði!
ég er að vinna 5 daga í viku, frá 5 á daginn til lokunar! það þýðir bara eitt : sólbað á daginn!
hellingur af hressum krökkum að vinna með mér á Thor!
ég mun flytja inn í nýja íbúð hérna í Nice 1 maí! Miklu stærri en þessi sem ég er me núna og ódýrari og ég mun vera með "roomie" það verður spennandi! Væntanlega einhver nemandi úr Alliance....
Ég er á leveli 3 í skólanum og mér gengur ágætlega með þessa blessuðu frönsku!
Mamma og pabbi koma til min 30 mars, get ekki beðið eftir því að fá þau til min!
Egill og Atli ætla að koma til mín 20-22 april...það verður mjög gaman að fá þá í heimsókn líka!
Guðný kom frá Italiu í gær og kom beint heim til min....mjög gaman að fá hana aftur heim!
Hun gaf mér þetta glæsilega Gucci peningaveski...aaaalveg alvöru!
Ég mun ekki koma heim fyrr en í lok ágúst...en ég vil ekkert huxa um það núna..hehehe
er að reyna ákveða hvað ég vil læra í háskólanum þegar ég kem heim...mjög erfið ákvörðun!
And there u have it...þetta er svona það sem er í gangi hjá mér í Frakklandi! hehe
G
Gyða Björk
23. febrúar 2007 klukkan 16:40
Ok Ok Ok...sorry sorry sorry elskurnar mínar! Ég hef enga afsökun ég veit, ég er ekki búin að blogga for aaaages! Eða jú það er bara svo gaman hjá mér að ég hef hreinlega ekki haft tíma til að setjast niður og blogga! But here goes...ég ætla að hafa þetta í punktum ok....
*Krakkarnir frá Montpellier komu til mín um daginn og voru alla helgina...mikið fjör hjá okkur! ójá
*Fórum til Monaco-Monte Carlo í einn dag!
*Nei ég sá ekki prinsinn...hehe
*Og já ég spilaði í Monte Carlo casinoinu og tapaði pening...
*Skólin gengur vel...er búin að eignast vin frá Isreal/frakklandi og hann var í hernum í Isreal...bad ass!
*Ég er að fara að sækja um vinna á bar...held að það verði gaman!
*Ég er ekki byrjuð að tala frönsku almenninlega...good things happen slowly!
*Dagný besta besta besta vinkona mín var að eignast litla stlpu 15 febrúar!
*Hún heitir Birgitta Líf og er algjört bjútí queen!
*Ég er að elska Nice í tætlur og mig langar ekkert að koma heim...hehe
*És sakna allra alveg rosalega mikið en ekki það mikið að mig langi heim...sorry! hehe
*Ég sakna voffana minna Fló og Fis hrikalega mikið!
*Guðný er alltaf hjá mér þegar hún er ekki að vinna og við förum yfirleitt að djamma þegar hún er hjá mér!
*Alltaf ótrúlega gaman hjá okkur!
*Í kvöld erum við að fara að djamma með einhverjum ríkum frönskum læknanemum! újé!
*Við erum að plana ferð til Parísar á næstuni! Munum gista hjá einhverjum myndarlegum Parísarbúa!
*Mamma og pabbi eru að koma í lok mars til að heimsækja litlu stelpuna sína!
*Þau ætla að vera hjá mér yfir páskana svo ég verði ekki ein!
*Ég er ekki lengur með net tengingu heima...eða bara stundum reyndar vegna þess að hommarnir voru með einhverja hommastæla og breyttu um password!
*Mig langar svo að kaupa mér lítið sætt dýr sem er í dýrabúðini á móti í búðinni minni!
*Hér er alltaf sól og blíða...og Nice festival í gangi núna! Glens og gaman!
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili...mér líður samt betur að vera búin að blogga allavega eitthvað! hehe en vonandi líður öllum vel heima á fróninu...
og Gulla ég veit að þú þarft á mér að halda núna til þess að fara að djamma...en hey þú verður bara að bíða eða þá koma hingað til mín! Alltaf velkomin....
Og svo er heeeellingur af myndum sem ég þarf að setja á netið við tækifæri!
g*
bisou
Gyða Björk
01. febrúar 2007 klukkan 02:42
Comment ca va? Já ég held að það sé alveg komin tími til þess að blogga, ég veit ég er ekki búin að vera dygleg að segja ykkur fréttir og svona og NEI það er ekki vegna þess að ég er komin með einhvern franskan kærasta sem er að gera mig svona upptekna....hehe það er hreinlega vegna þess að það er alltaf svo mikið að gera hjá mér...dagurinn líður svo hratt þegar ég er hérna! Það er svo mikið skemmtilegt hægt að gera í Nice. Núna er er ég að klára fyrsta mánuðin í Alliance og ég verð að segja eins og er að ég er farin að geta talað miklu meira á frönsku og ég skil líka fólk miun betur en ég gerði, enda er það líka markmiðið! í dag hitti ég kennaran minn sem mun kenna mér á næsta leveli og hann er algjört æði. Hann heitir Jean Phillippe, og hann er ekkert smá hress og skemmtilgur. í dag kom Brynhildur með mér í skólan og var að skrá sig á námskeiðið, og henni hlakkar bara til að byrja í skólanum!
Brynhildr kom hingað til Nice á laugardaginn síðasta. Við byrjuðum á því að fá okkur smá í glas þegar hún kom og svo fórum við með hana út að borða. Það var allt upp pantað á Maori veitingastaðinum sem við ætluðum að fara með henni á þannig við enduðum á því að fara á versta veitingarstaðin sem hægt var að finna...hehe aumingja Brynhildur sem var svo sv-ng eftir ferðalagið endaði með því að fá versta matin af okkur, hún ætlaði að vera voða "safe" og pantaði sér bara hamborgara, svo kom maturinn þá var þetta hálf hrár kjötklumpur með einu hamborgarabrauði og engri sósu...haha hversu óheppin! En jæja þetta byrjaði ekki vel. En svo fórum við að djamma á mánudaginn. Það er alltaf á mánudögum á einum staðnum hérna kvöld sem heitir Ladies night sem að þýðir að ef maður borgar 3 evrur á barnum þegar maður kemur inn fær maður stimpil á hendina og drekkur frítt allt kvöldið. Það er samt bara kampavín sem maður fær að drekka, við létum okkur hafa það og drukkum allar kampavín eins og vatn...og vááá ég var búin að gleyma hvað svona léttvín fer illa í mig...við enduðum allar alveg veeel skrautlegar! og við meira að segja fengum Brynhildi til að dansa og það gerist aldrei! þetta var alveg mjög skrautlegt kvöld og endaði skrautlega líka. Við vorum fyrir utan íbúðina okkur í Rue Defly og vorum að taka einhverjar myndir og þá kom einhver gaur útúr einhverjum bíl sem var að keyra framhjá og bauðst til að taka mynd af okkur þrem saman, en við sögðum bara no no no its ok, en hann tók ekkert annað í mál heldur en að taka mynd af okkur saman. Svo tekur hann utan um glænýju myndavelina hennar Brynhildar og þykist ætla að sýna henni eitthvað og svo reyndi hann að hlaupa í burtu með myndavélina en sem betur fer var Brynhildur með bandið á vélinni vafið utan um hendina á sér þannig að hann náði ekki að kippa henni með...og vá við vorum svo reiðar...við svoleiðis blótuðum eftir honum og svo bara beint ínn í íbúð...en við vorum ekkert smá heppnar að fíflíð náði ekki að stela myndavélinni...það hefði verið þvílíkur bömmer....!
En hérna er alltaf sól og blíða og við löbbum svo ótrúlega mikið alla daga og maður er alltaf að sjá eitthvað nýtt hérna...við fundum meira að segja Subway í dag og vorum ekki lengi að skella okkur inn og fá okkur einn subway..hehe og hann var alveg jafn góður og hann er heima! Núna veit maður hvert á að fara í Þynkuni um helgar...hehe! Annars er eitt sem við erum alveg hooked á núna, Crepes með Nutella, það er alveg hættulega gott...og það er hægt að fá það á hverju horni hérna...frekar hættulegt fyrir stelpur eins og mig sem eru sjúkar í súkkulaði!!! hehe
Ég og Brynhildur sitjum núna með lappana okkar á mjööög funky stað sem er beint á móti íbúðinni okkar. Staðurinn heitir Smarties Electro lounge og það eru hommar sem eiga þennan stað. Þegar ég kom hingað fyrst og þekkti engan og var ekki komin með netið, trítlaði ég hingað yfir og fekk mér að drekka hjá þeim og spurði hvort þeir vissu um eitthvað net Caffé sem ég gæti farið á, en þá buðu þeir mér bara að nota tölvuna sína, algjörar dúllur! En svo sagði ég við þá að ég væri sjálf með laptop og spurði hvort ég mætti koma með hann yfir og fá að fara á netið og þeir sögðu að það væri ekkert mál og að ég væri alltaf velkomin yfir ef ég vildi fá að kíkja á netið! En svo þegar ég kom heim um kvöldið komst ég að því að ég gat náð tengingu inní íbúðinni minni! Þannig það er allt þeim að þakka að ég skuli vera með netið 24/7! Mér finnst ég allavega ótrúlega heppin, vegna þess að það er meira en að segja það að fá netið hérna í frakklandi...alveg 3iggja mánaða process skilst mér...
En þetta er orðin algjör læangloka hjá mér...við ætlum að kottast aftur heim núna...Guðný er að koma og ætlar gista með okkur í nótt...
Svo er ég búin að sitja inn nýjar myndir, myndir af Nice og af djamminu okkar á mánudaginn! Enjoy peepz!
G*


Gyða Björk
17. janúar 2007 klukkan 03:26
Jæja hvar á ég að byrja! Það er svo margt að segja frá...allavega ætla ég að segja frá helgarferðinni til Montpellier! Ég fór á fimmtudaginn með lestinni til Montpellier til að hitta Guðnýu og fleiri krakka sem eru þar núna í frönskunámi eins og ég. Eftir 4 tíma lestarferð var ég loksins komin, ég og Guðný byrjuðum á að fara út í búð að versla okkur í matin. Svo sátum við og borðuðum og drukkum og spjölluðum! Svo fórum við í heimsókn til Hjördísar, Kristínar, Báru og Brynju og fengum okkur aðeins í glas með þeim áður en við fórum út á lífið. Voða fín og kósí íbúðin sem stelpurnar eru með þarna í Montpellier. Þetta var mjög skemmtilegt kvöld og við lentum í allskonar bulli og vitleysu, hehe komust endanlega að því að franskir strákar eru mjööög spés...haha hittum einhverja óða stráka með vatnsbyssu sem voru með þvílík læti þarna, við stóðum í einhverri þröngri götu með þeim og það var einhver eldri kona sem bjó þarna í íbúð fyrir ofan einhverja verlun og það endaði með því að hún kom út á svalir og var að rífa kjaft við strákan og var að segja þeim að hafa hljótt en þeir rifust bara á móti...hún hélt nú ekki þannig að hún fór bara inn og náði í fötu fulla af vatni og helti yfir þá alla...haha ég hef sjaldan hlegið jafn mikið...hehe en það dugði til að fá þá úr götuni hennar! Svo var Guðný svo heppin að eignast þennan fína MAZE brúsa til að hafa í vasanum, og manni finnst maður alveg vera nokkuð öruggur að hafa svona á sér þarna...allskonar furðufuglar þarna á ferð...og setning kvöldsins var klárlega..."I HAVE MAZE AND I AM NOT AFRAID TO USE IT" hehe æ kannski er þetta ekkert fyndið en við hlógum allavega mikið af þessari setningu þegar ég sagði þetta við einn strákin þarna um kvöldið...hehe ég held að hann hafi samt ekkert skilið mig...frakkarnir eru frekar tregir í enskuni...(",)


Daginn eftir var glampandi sól og hiti og við fórum í bæin til að skoða í búðir og njóta góða þess að vera í góða veðrinu...við löbbuðum út um allt og skoðuðum bæinn, sátumst svo á kaffihús á torginu og fengum okkur að drekka...svo komu einhverjir fiðluleikarar að spila fyrir fólkið sem sat úti í góða veðrinu...við nutum þess í botn að sitja þarna í sólinni og slappa af...svo um kvöldið fórum við heim til Vivi, sem er frönsk vinkona hennar Guðnýar sem hún kynntist í gegnum myspace...hehe hún er svo klikkuð! en við fórum heim til hennar og kærasta hennar og fengum okkur í glas, voða kósí! En ef þið skoðið myndirnar af þessari stelpu sjáiði að hún lítur út fyrir að vera svona goth/rokk/scary týpa en hún er ljúf sem lamb og alveg rosalega góð stelpa...hehe þegar Guðný sýndi mér hana fyrst var ég ekki alveg að fíla hana, en svo er hún þessi fína stelpa! En allavega þá fórum við út með henni um kvöldið á nokkra staði og það var ekkert smá gaman hjá okkur! (",) við lentum svo í alveg mjög fyndnu atviki á leiðinni heim eftir kvöldið. Við vorum alveg rétt komnar heim og ég var orðin alveg mjög þreitt í löppunum eftir að hafa labbað um á hælaskóm allt kvöldið þannig að ég var soldið eftir Guðnýu...Guðný stoppar á næsta horni á ákveður að bíða eftir mér. Svo heyrir Guðný allt í einu..."Mademoiselle, mademoiselle...move to the next corner, this is my corner" (samt á frönsku) hehe þá hélt hún að Guðný væri komin á hornið til að reyna að selja sig, en hún átti þetta horn víst!...haha við hlógum endalaust af þessu...


Síðast dagin minn í Montpellier gerðum við eiginlega alveg það sama og daginn áður...hehe kíktum í búðir og löbbuðum um, fórum svo heim og gerðum okkur til fyrir kvöldið! Fórum við til Hjördísar og co fengum okkur í glas...3ja kvöldið í röð..hehe en þar hittum við íslenskt par sem búa í Montpellier líka sem krakkarnir kynntust í gegnun skólan, svo kom Jason bandaríski vinur krakkana og einhverjir fleiri...þetta var eiginlega orðið hálfgert partý þarna hjá þeim...en vegna mikilla þreitu í krökkunum var það bara ég og Guðný sem enduðum með því að kíkja aðeins í bæin...fórum á stað sem heitur Rock bar sem er ská á móti íbúðinni hjá Hjördísi og co...alveg risastór staður. En helgin var sem sagt alveg frábær í alla staði, en það var samt alveg voða notalegt að koma svo aftur " heim" í íbúðina mína hérna í Nice...!


Næstu helgi kemur svo Guðný hingað til mín og verður yfir helgina áður en hún byrjar í nýju vinnuni sinni á hótelinu í Antibes...Antibes er bara hérna svona 10 min með lest frá Nice! Svo á laugardaginn verður aldeilis fjör hjá okkur...við erum sem sagt að far til Cannes á tónleika, það er eitthvað music festival þarna á laugardaginn og við munum sjá meðal annars Lienol Richie og James Morrison og svo einhver fleiri hljómsveitir! En þetta er allt undir berum himni...svona úti tónleikar í góða veðrinu! við ætlum að byrja daginn snemma og taka svo bara kvöld lestina heim! Ég er nefla með smá James Morrison æði þessa dagna þannig mig er farið að hlakka soldið til...þannig það verður bara All night long í Cannes eins og Lienol vinur minn myndi segja...hehe og Jonni ég veit þú öfundar mig...en það er bara gott á þig...múhahaha!
þau þurftu endilega að finna tvo ljótustu tónlistarmenn í heiminum til þess að syngja á þessu festivali...greyin ekki beint með útlitið með sér...
En jæja þá er þetta komið gott í bili held ég...úfff löng færsla!
Það er líka komnar inn glænýjar myndir frá helginni í Montpellier! sumar soldið skrautlegar! En ég settir þær í þrjú albúm...dagur 1 * dagur 2 * dagur 3! Enjoy!
Ástarkveðjur frá Nice
g*
Gyða Björk
09. janúar 2007 klukkan 04:11
Gyða Björk